Hárið 40 árum seinna
7.12.2011 | 18:07
Fjöritíu ár eru síðan við hættum sýningunum. Fyrsta uppfærslan á Hárinu var árið 1971 og við fögnuðum því 40 árum síðar.
Vinir og fjölskylda | Breytt 27.3.2012 kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hárið fyrsta uppfærsla árið 1971
11.10.2011 | 09:46
Ég var að fá myndir af prógramminu okkar úr Hárinu sem sett var upp í Glaumbæ 1971 og gekk fyrir fullu húsi allan tímann sem sýningar stóðu yfir. Varð að setja þessar myndir í myndamöppu hér á síðunni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvítárbrúin vígð 9. sept. 2011
8.9.2011 | 14:27
Hvítárbrúin hefur nú þegar breytt miklu fyrir okkur Uppsveitamenn og á eftir að breyta enn meir í framtíðinni. Þetta er mjög gleðilegur atburður og við þökkum kærlega fyrir okkur. Hvítárbrúin styttir vegalengdir í allar áttir og tengir okkur meiri og betri böndum en áður.
|
Hvítárbrú formlega opnuð á morgun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Mamma Rósa og amma Guðlaug myndir
6.9.2011 | 20:50
Mamma mín Rósa Björnsdóttir, 22ja ára að sögn Bellu frænku en hún færði mér þessa mynd og líka þá sem er af mér og ömmu minni. Ég held að þessi mynd hafi verið sumarið 1952.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tungufljótsdeild V.Á. Dómsmál
14.6.2011 | 21:41
Ég hef verið formaður Tungufljótsdeildar frá því að mér og félögum mínum og landeigendum að Tungufljóti tókst að stofna veiðideild í Tungufljóti. Það var sumarið 2009. Stofnun deildarinnar var kærð til Fiskistofu. Fiskistofa gaf sér 6 mánuði eins og lög gera ráð fyrir til að úrskurða um stofnun deildarinnar. Deildin var löglega stofnuð samkvæmt úrskurði Fiskistofu frá 19. janúar 2010.
Nú hefur verið dæmt í máli deildarinnar gegn landeiganda sem á, að eigin sögn, 20% í jörð við Tungufljótið. Hann má ekki veiða í sínu landi þar sem Tungufljótsdeild hefur leigt Tungufljótið út til þriðja aðila. Óyggjandi dómur Héraðsdóms Suðurlands segir allt um málið. Hægt að lesa dóminn hér.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sleppingar laxa
5.6.2011 | 10:50
|
Fyrsti laxinn kominn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bláskógabyggð sem hluti af Uppsveitunum, Flóinn, Ölfus og Hveragerði sameinast um velferðarþjónustu.
4.5.2011 | 22:17
|
Sveitarfélög sameinast um velferðarþjónustu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flottir KR-ingar, tvöfaldir meistarar 2011, til hamingju.
19.4.2011 | 23:06
Dáist að leikmönnum. Orðnir Íslandsmeistarar. Óska Fannari og félögum hans til hamingju með sigurinn. Mamma mjög hreykin eins og vera ber.
|
KR-ingar Íslandsmeistarar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Fagnaðarlæti KR-inga, sigurvegara Bikarkeppninnar (poweraid)
23.2.2011 | 06:31
|
Myndasyrpa frá bikarsigri KR-inga |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Hvítárbrúin opnuð fyrir umferð miðvikudaginn 1. desember 2010
29.11.2010 | 17:20
Margir hafa sýnt áhuga á að hittast í tilefni dagsins og nú er lagt til að íbúar í Hrunamannahreppi og Bláskógabyggð hittist á brúnni miðvikudaginn 1. des. milli kl. 15:00 og 17:00, kíki á mannvirkið, spjalli saman, takist í hendur, faðmist eða hvaðeina sem þeim dettur í hug að gera. Fyrirvarinn er lítill því ekki var vitað um opnunardaginn, en ef menn vilja leggja eitthvað til er það velkomið.
„Tungnakonur búsettar í Hreppnum“ og JÁVERK bjóða upp á kaffi og kleinur í vinnubúðunum vestanmegin árinnar. Ekki er um formlega opnun eða vígslu brúarinnar að ræða, það gerist 2011, þegar öllum vegaframkvæmdum verður lokið. Þetta er einungis jákvætt stefnumót íbúa beggja vegna brúarinnar.




Héraðsdómur Suðurlands 10.6. 2011









martasmarta
tofraljos
zunzilla
hildurhelgas
vefritid
svanurg
steinig
valdimarjohannesson